Fyrir hótel og gistiheimili

Lífrænn textíll, gerður af ábyrgð

Herbergistextíll með ykkar merki, framleiddur eftir pöntun fyrir hótel og gistiheimili.

GOTS vottaðLífræn bómull og hör
Ykkar merkiPrentað eða saumað í
Frá 100 stykkjumLágmark á hverja vöru
Engir tollarEFTA–Indlandssamningurinn

Ykkar merki

Svona virkar þetta

1Veljið vöru og magn

Frá 100 stk á vöru. Lágmark fer eftir lit og merkingu.

2Sendið merkið

Við sendum ykkur mynd af prufu til samþykktar áður en framleiðsla hefst.

350% innborgun

Greitt með millifærslu við staðfestingu, restin við afhendingu.

4Afhending eftir 5–6 vikur

Tollfrjálst frá Indlandi, beint til ykkar.

Reiknivél

Hvað þarf mikið?

Sláðu inn fjölda herbergja. Við reiknum með auka til skiptanna á meðan annað er í þvotti.

VaraÍ notkunAukaPöntun

Slæður og fyrirtækjagjafir

Slæður í heildsölu

Mynstur úr ljósmyndum Ragnars Axelssonar (RAX) af íslenskri náttúru. Til á lager og send strax, heildsöluverð frá 5 stk. Vinsælar sem gjöf til starfsfólks og viðskiptavina.

Skoða slæðurnar

Lífrænt og vottað

Vottað alla leið, frá akri til herbergis

GOTS & OEKO-TEX

Lífræn trefjar, vottuð litun og prentun, staðfest af óháðum aðilum.

Fair Trade

Sanngjörn kjör fyrir fólkið sem framleiðir vörurnar.

Green Key

Vörurnar styðja hótel sem stefna á eða eru með Green Key vottun.

Engir tollar

Flutt inn tollfrjálst samkvæmt EFTA–Indlandssamningnum.

Framleiðandinn

Saumastofa í Nýju-Delí, síðan 2007

Samstarfsaðili okkar á Indlandi saumar á eigin saumastofu og vinnur eftir GOTS og Fair Trade. Svo við vitum hver saumar og við hvaða aðstæður.

Sanngjörn laun

Saumafólk fær að meðaltali tvöföld lágmarkslaun, bónusa og sjúkratryggingu.

Mildari litun

Azo-frí, umhverfisvæn litarefni og náttúruleg litun í boði.

Ekkert fer til spillis

Afskurður er nýttur í poka og umbúðir eða sendur í endurvinnslu og handgerðan pappír.

Gefa til baka

Styrkja menntun stúlkna, dýravernd og umönnun aldraðra á Indlandi.

Um Dimmblá

Framleitt eftir pöntun, svo ekkert fer til spillis

Dimmblá er íslenskt vörumerki stofnað af Heiðrúnu Ósk Sigfúsdóttur með það að markmiði að gera vandaðar vörur sem endast. Við framleiðum aðeins það sem er pantað, úr vottuðum lífrænum efnum, í samstarfi við saumastofu á Indlandi sem vinnur eftir GOTS og Fair Trade.

Hótel og fyrirtæki fá textíl með eigin merki, og gestir fá eitthvað sem þeim líður vel með.

Sérpöntun eða fyrirspurn

Segðu okkur hvað þið þurfið

Vantar ykkur eitthvað sem er ekki á síðunni? Við framleiðum margt annað úr lífrænum efnum. Lýstu vörunni, magni og hvenær þið þurfið hana og við sendum tilboð.

Merki eða myndir? Sendu þær á dimmbla@dimmbla.is.