Fyrir hótel og gistiheimili
Lífrænn textíll, gerður af ábyrgð
Herbergistextíll með ykkar merki, framleiddur eftir pöntun fyrir hótel og gistiheimili.
Sérframleiðsla
Sýnishorn af sérframleiðslu
Allt framleitt eftir pöntun. Lágmark fer eftir lit og merkingu. Vantar eitthvað annað? Sendu okkur fyrirspurn.
ÞvottapokiLífræn bómull, prentað merki eða fyndinn textiPanta eða fá tilboð
HárþurrkupokiPoplin, prentað merki eða fyndinn textiPanta eða fá tilboð
Rúmrenningur úr hör260×100 cm (tvíbreitt) eða 170×100 cm (einbreitt). Merki saumað í ef villPanta eða fá tilboð
Röndótt hörteppiHör með kögri. Merki saumað í hornið ef villPanta eða fá tilboð
HörservíetturHvítar, kolgráar eða röndóttar. U.þ.b. 45×45 cmPanta eða fá tilboð
Slæða með ykkar prentunYkkar mynstur eða merki á lífræna bómull og peace silk, 100×100 cm, í gjafapoka. Frá 100 stkPanta eða fá tilboð
Ykkar merki
Svona virkar þetta
Frá 100 stk á vöru. Lágmark fer eftir lit og merkingu.
Við sendum ykkur mynd af prufu til samþykktar áður en framleiðsla hefst.
Greitt með millifærslu við staðfestingu, restin við afhendingu.
Tollfrjálst frá Indlandi, beint til ykkar.
Reiknivél
Hvað þarf mikið?
Sláðu inn fjölda herbergja. Við reiknum með auka til skiptanna á meðan annað er í þvotti.
Lágmarkspöntun er 100 stk á vöru, svo þið fáið aðeins meira en þarf. Aukinn nýtist sem varalager.
| Vara | Í notkun | Auka | Pöntun |
|---|

Slæður og fyrirtækjagjafir
Slæður í heildsölu
Mynstur úr ljósmyndum Ragnars Axelssonar (RAX) af íslenskri náttúru. Til á lager og send strax, heildsöluverð frá 5 stk. Vinsælar sem gjöf til starfsfólks og viðskiptavina.
Lífrænt og vottað
Vottað alla leið, frá akri til herbergis
Lífræn trefjar, vottuð litun og prentun, staðfest af óháðum aðilum.
Sanngjörn kjör fyrir fólkið sem framleiðir vörurnar.
Vörurnar styðja hótel sem stefna á eða eru með Green Key vottun.
Flutt inn tollfrjálst samkvæmt EFTA–Indlandssamningnum.
Framleiðandinn
Saumastofa í Nýju-Delí, síðan 2007
Samstarfsaðili okkar á Indlandi saumar á eigin saumastofu og vinnur eftir GOTS og Fair Trade. Svo við vitum hver saumar og við hvaða aðstæður.
Saumafólk fær að meðaltali tvöföld lágmarkslaun, bónusa og sjúkratryggingu.
Azo-frí, umhverfisvæn litarefni og náttúruleg litun í boði.
Afskurður er nýttur í poka og umbúðir eða sendur í endurvinnslu og handgerðan pappír.
Styrkja menntun stúlkna, dýravernd og umönnun aldraðra á Indlandi.

Um Dimmblá
Framleitt eftir pöntun, svo ekkert fer til spillis
Dimmblá er íslenskt vörumerki stofnað af Heiðrúnu Ósk Sigfúsdóttur með það að markmiði að gera vandaðar vörur sem endast. Við framleiðum aðeins það sem er pantað, úr vottuðum lífrænum efnum, í samstarfi við saumastofu á Indlandi sem vinnur eftir GOTS og Fair Trade.
Hótel og fyrirtæki fá textíl með eigin merki, og gestir fá eitthvað sem þeim líður vel með.
Sérpöntun eða fyrirspurn
Segðu okkur hvað þið þurfið
Vantar ykkur eitthvað sem er ekki á síðunni? Við framleiðum margt annað úr lífrænum efnum. Lýstu vörunni, magni og hvenær þið þurfið hana og við sendum tilboð.